Það er stórleikur á dagskrá í enska boltanum í dag en Manchester City fær Manchester United í heimsókn.
Grannaslagurinn hefst klukkan 15:30 í dag en City þarf mikið á stigum að halda og það sama má segja um þá rauðklæddu.
Englandsmeistararnir eru fjórum stigum á eftir toppliði Liverpool sem vann Nottingham Forest 1-0 í gær.
United er í sjötta sæti og sex stigum á eftir Tottenham sem er í fimmta sæti í Evrópubaráttunni.
Hér má sjá byrjunarlið dagsins.
MANCHESTER CITY: Ederson; Walker, Rúben Dias, Stones, Aké; Bernardo Silva, Rodri, De Bruyne; Doku, Haaland, Foden
MANCHESTER UNITED: Onana; Dalot, Varane, Evans, Lindelöf; Casemiro, Mainoo, McTominay; Bruno Fernandes, Garnacho; Rashford.