Embætti landlæknis birti endurskoðaða útgáfu opinberra ráðlegginga um hreyfingu og takmörkun kyrrsetu fyrir skömmu. Ráðleggingar um hreyfingu fyrir fatlaða voru í fyrsta sinn sérstakur liður í útgáfunni. Hvati, tímarit ÍF, greinir frá.
Fatlaðir geta af ýmsum ástæðum átt erfiðara með að stunda hreyfingu en ófatlaðir. Til dæmis æfa einungis um 4% fatlaðra barna íþróttir innan íþróttahreyfingarinnar sem er margfalt lægra hlutfall en gengur og gerist á meðal ófatlaðra barna.
Íþróttir geta haft stórkostleg áhrif á líf fatlaðra barna eins og greinir frá í tveimur myndböndum hér að neðan, en þau eru liður í þriggja ára Evrópuverkefni sem byggði á inngildingu til að efla tækifæri 6 til 12 ára barna með sérþarfir í íþróttastarfi. Þátttökulönd voru Bosnia Herzegovína, Svartfjallaland, Litháen, Rúmenía, Slóvakía og Ísland.