fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
433Sport

Valur selur Birkir Heims heim í Þór

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 1. mars 2024 22:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild Þórs hefur komist að samkomulagi við Val um félagaskipti fyrir Birki Heimisson og hefur Birkir skrifað undir þriggja ára samning við Þór.

Með þessu er Birkir að snúa aftur heim í Þorpið eftir átta ára fjarveru en hann var seldur frá Þór til hollenska úrvalsdeildarliðsins Heerenveen sumarið 2016. Birkir er 24 ára og hefur leikið með Val í efstu deild hér á landi frá árinu 2020.

Birkir hefur leikið 125 leiki hér á landi og skorað þrettán mörk auk þess að hafa leikið 28 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim fimm mörk.

Sveinn Elías, formaður knattspyrnudeildar

Í kvöld náðum við samkomulagi við Val og Birki um að leikmaðurinn snúi aftur heim til Þórsara. Við í stjórn knattspyrnudeildar Þórs erum virkilega stoltir af því að fá Birki aftur heim, hann hefur síðustu fjögur tímabil spilað lykihlutverk með Val í Bestu deild karla og varð m.a. Íslandsmeistari með þeim árið 2020.

Nú er hins vegar komið að því að hann taki að sér nýtt leiðtogahlutverk hjá sínu uppeldisfélagi. Birki þarf ekki að kynna fyrir neinum Þórsara. Við fengum síðast að njóta krafta hans á vellinum árið 2016, sjálfur var ég í hlutverki fyrirliða inni á vellinum þá og veit því fullvel hvers hann er megnugur og því er ekki að leyna að koma hans ýtir vel undir spenning fyrir komandi sumri.

Ég vil þakka Val fyrir fagleg og góð vinnubrögð í samtali okkar vegna Birkis og býð hann og fjölskylduna innilega velkomin heim í Þorpið!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gætu bannað Toney að fara eftir meiðslin

Gætu bannað Toney að fara eftir meiðslin
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ekki atvinnumannalið í fyrsta sinn frá 1937 – Hafa unnið deildina sex sinnum

Ekki atvinnumannalið í fyrsta sinn frá 1937 – Hafa unnið deildina sex sinnum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu hvað leikmaður Liverpool sagði þegar hann hélt að slökkt væri á hljóðnemanum – Myndband

Sjáðu hvað leikmaður Liverpool sagði þegar hann hélt að slökkt væri á hljóðnemanum – Myndband
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ný treyja Manchester United slær algjörlega í gegn – Mynd

Ný treyja Manchester United slær algjörlega í gegn – Mynd
433Sport
Í gær

Bálreiður eftir að óboðnir gestir brutust inn og rændu verðmætum: Hegðunin óboðleg – ,,Þeir köstuðu blysum í átt að okkur“

Bálreiður eftir að óboðnir gestir brutust inn og rændu verðmætum: Hegðunin óboðleg – ,,Þeir köstuðu blysum í átt að okkur“
433Sport
Í gær

Sambandsdeildin: Tvö íslensk lið töpuðu heima – Emil með tvennu

Sambandsdeildin: Tvö íslensk lið töpuðu heima – Emil með tvennu