fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

„Skuldir sem fylgja miðanum út í frelsið og tekur því við sannkallað skuldafangelsi sem varað getur út ævina“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 28. febrúar 2024 12:30

Guðmundur Ingi Þóroddsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Að mati Afstöðu endurspegla niðurstöður könnunarinnar þá staðreynd að íslenskir fangar eru upp til hópa einstaklingar sem misst hafa af tækifærum í lífinu sem öðrum þykja sjálfsögð. Einstaklingar sem hafa glímt hafa við mikinn félagslegan vanda sem litað hefur líf þeirra á alla vegu og orðið til þess að þeir beygi af réttri braut,“

segir Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, um niðurstöður konnunar sem Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, gerði í íslenskum fangelsum. 

Í pistli hans á Vísi kemur fram að helstu niðurstöður könnunarinnar eru að tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð og fæstir þeirra sem ljúka afplánun taka virkan þátt á vinnumarkaði. Segir Guðmundur Ingi niðurstöðurnar gefa tilefni til þess að stjórnvöld skoði félagshagfræðilega þætti fangelsunar gaumgæfilega með tilliti til þeirra úrræða sem bjóðast þegar fangar hafa greitt skuld sína gagnvart samfélaginu með fangelsisvist.

„Þar sem endurkomutíðni í íslenskum fangelsum er mjög há og gera má ráð fyrir að annar hver einstaklingur hljóti fangelsisdóm aftur má draga þá ályktun að fæstir þeir sem fara í gegnum fangelsiskerfið hér á landi fari nokkurn tíma á vinnumarkað. Sú ályktun er meðal annars byggð á þeirri staðreynd að dómþolum er gert að greiða sektir, bætur, sakarkostnað og uppsöfnuð meðlög. Þetta eru skuldir sem fylgja miðanum út í frelsið og tekur því við sannkallað skuldafangelsi sem varað getur út ævina,“ segir Guðmundur Ingi.

„Skuldafangelsið birtist helst í því að 70% af launum viðkomandi eru sjálfkrafa dregin frá upp í umræddar skuldir þrátt fyrir að augljóst megi heita að ekki nokkur einstaklingur í veikri stöðu geti lifað af 30% launa sinna. Þetta leiðir óumflýjanlega til þess að fyrrum dómþolar finna sér störf í svörtu hagkerfi og komast því í raun aldrei almennilega út í hið frjálsa samfélag. Líkurnar aukast því verulega á áframhaldandi glæpastarfsemi sem oftar en ekki endar með nýjum fangelsisdómi.“

Skora á ríkisstjórnina að setja starfshóp á fót

Segir Guðmundur Ingi að Afstaða telji þetta verulegt áhyggjuefni og ljóst að félagslegt stuðningsnet eftir afplánun er þakið götum. Stjórnvöld verði að opna augun fyrir því að þetta fyrirkomulag hindrar farsæla aðlögun að samfélaginu og eykur ítrekunartíðni glæpa með tilheyrandi afleiðingum fyrir samfélagið allt.

„Afstaða skorar á ríkisstjórnina að setja á fót starfshóp þvert á ráðuneyti til að skoða í grunninn tengslin á milli efnahagslegra erfiðleika, takmarkaðra atvinnutækifæra og þátttöku í glæpum með tilliti til núverandi fyrirkomulags og finna leiðir til að styðja við fyrrverandi fanga í þessari stöðu. Tryggja verður að félagslegt stuðningsnet skili árangri og víkja frá þeirri stefnu sem stuðlar að skuldafangelsi.“

Könnunin var lögð fyrir sextíu fanga úrtak í íslenskum fangelsum og var svarhlutfall um 90%, sem Guðmundur Ingi segir alls ekki sjálfsagt. „Könnunin var einföld og eingöngu leitað svara við því í hvaða stéttarfélag og í hvaða lífeyrissjóð viðkomandi hafði greitt í einhvern tíma á ævinni fyrir afplánun. Niðurstöðurnar voru jafnframt á þá leið að 45% þeirra sem höfðu greitt í þessa sjóði greiddu í Eflingu stéttarfélag og Gildi lífeyrissjóð. Sú niðurstaða leiðir jafnframt til þess að frekari rannsókna er þörf þegar kemur að efnahagslegum tengslum við glæpastarfsemi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest
Fréttir
Í gær

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“