Finnar gengu í NATO á síðasta ári en landið á 1.330 km löng landamæri að Rússlandi. Vonast finnsk yfirvöld til þess að skotfimi geti orðið eins vinsæl íþrótt og knattspyrna eða íshokkí.
The Guardian segir að nú séu um 670 skotsvæði í landinu en þau hafi verið um 2.000 í upphafi aldarinnar. Stefni ríkisstjórnin nú að því að fjölga þeim í um 1.000 fyrir 2030.
Jukka Kopra, formaður finnsku varnarmálanefndarinnar, sagði í samtali við the Guardian að fjölgun skotsvæðanna sé hluti af varnarmálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Það komi sér vel að fólk kunni að skjóta og bæti getu sína í þeim efnum.
Í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu hafa vinsældir námskeiða, þar sem varaliðsfólki og almennum borgurum, er kennt að skjóta aukist mikið og er aðsóknin nú tvöfalt meiri en fyrir stríð. Einnig hefur umsóknum um skotvopnaleyfi fjölgað mikið.