Ástæðan er að samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar nýsjálenskra vísindamanna, sem hefur verið birt í vísindaritinu British Journal of Nutrition, þá getur kíví gert þig glaða(n).
Ástæðan er að ávöxturinn inniheldur mikið af C-vítamíni en vísindamenn hafa lengi bent á að það geti bætt skapið. En það kom vísindamönnunum á óvart hversu hratt það virkar á skapið að borða kíví.
Í rannsókninni var þátttakendunum skipt upp í þrjá hópa. Eftir aðeins fjóra daga var greinilegur munur á skapi þátttakendanna eftir því hvort þeir borðuðu tvö kíví daglega eða ekki.
En sá galli er á gjöf Njarðar að áhrifin eru frekar skammvinn því áhrifin ná hámarki eftir 14 til 16 daga.
Ef þú ert ekki svo hrifin(n) af kíví, þá er hægt að fá C-vítamín úr öðrum ávöxtum og grænmeti sem falur kannski betur að bragðlaukum þínum. Þar má nefna sítrusávexti, ber, tómata og blómkál. Ekki liggur þó fyrir hvort sömu áhrif náist með neyslu þeirra.