Það þarf kannski ekki að koma á óvart að miðað við framangreint þá falli grunur á eiginmanninn varðandi hvarf eiginkonu hans en þau voru skilin að borði og sæng. En hann er löngu farinn aftur heim til ættlands síns Serbíu og eftir standa ættingjar og vinir Ana Maria Knezevic, sem býr í Flórída, með fjölda ósvaraðra spurninga í þessu dularfulla máli. Bandarískir fjölmiðlar, þar á meðal NBC og CBS, hafa fjallað töluvert um málið að undanförnu.
Eftir að það slitnaði upp úr hjónabandi hennar fór Ana, sem er bandarískur ríkisborgari en fædd í Kólumbíu, til Madríd. Þaðan var hún reglulega í sambandi við ættingja og vini.
Þann 2. febrúar fékk vinkona hennar dularfull skilaboð frá henni um að hún hefði kynnst nýjum manni og að þau ætluðu í ferðalag í nokkra daga. Þennan sama dag birtist maður, með mótorhjólahjálm á höfðinu, í stigaganginum í fjölbýlishúsinu, sem Ana býr í, og úðaði svartri málningu á eftirlitsmyndavélina sem þar er.
Eftir þetta hefur enginn heyrt eða séð Ana, sem er fertug.
Eiginmaður hennar hefur í gegnum lögmann sinn, Ken Padowitz, tjáð sig um málið og segist ekki hafa hugmynd um hvar Ana sé eða af hverju hún er horfin.
„Hann veit ekkert um hvað gerðist og honum líður hræðilega. Hann vísar því algjörlega á bug að um „slæman skilnað“ hafi verið að ræða, því þannig var það ekki,“ sagði Padowitz í samtali við Fox News.
Ekki hefur verið gengið frá skilnaðinum formlega og hjónin eiga því enn fyrirtæki og nokkrar fasteignir saman.
„Ég held að hann hugsi mikið um hvað hafi gerst, að eiginkona hans er horfin. Hann vill að sjálfsögðu að hún finnist og hlakkar til þess dags sem þessi harmleikur tekur enda,“ sagði Padowitz.