Þorsteinn Sæmundsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, talar inn í þá umræðu sem hefur verið undanfarið um málefni leigubílaaaksturs, í aðsendri grein á Vísir.is.
Þorsteinn harmar þá breytingu sem varð á lögum um leigubílaakstur undir lok árs 2022 og tók gildi 1. apríl 2023, en breytingin felur meðal annars í sér að ekki þarf lengur að starfa á skráðri leigubílastöð til að fá starfsleyfi sem leigubílstjóri:
Þorsteinn segir í grein sinni að sú hafi verið tíðin að hægt var að ná sér í leigubíl í Reykjavík með því að veifa og kalla frá gangstéttarbrún:
„Þú gast treyst því að laus bíll stöðvaði, stigið um borð og fengið örugga ferð heim að dyrum hvert sem ferðinni var heitið og greitt uppsett verð samkvæmt mæli. Þú gast gengið að því vísu að bílstjórinn skildi hvað þú sagðir og að hann rataði á áfangastað.“
Þetta öryggi sé núna horfið:
Ekki lengur. Sá og þó einkanlega sú sem kallar á leigubíl á Höfuðborgarsvæðinu eða tekur leigubíl í röð í Reykjavík eða við Leifsstöð veit ekkert hvaða þjónustu hann eða hún fær nema bíllinn sé merktur ábyrgri leigubílastöð. Veit ekkert um hvort bíll og bílstjóri uppfylli settar reglur. Veit ekkert um hvort bíll og bílstjóri eru skráð á leigubílastöð. Veit ekkert um hvort bílstjóri hefur tilskilin leyfi og réttindi. Veit ekkert um hvort leigubíllinn sé fulltryggður. Veit ekki fyrirfram hvort bílstjóri skilur þig eða ratar um Höfuðborgarsvæðið og nágrenni. Meðan þetta ástand varir eru þau ein óhult sem panta bíl með símtali eða appi ellegar aðgæta hvort leigubíll í röð sé merktur ábyrgri leigubílastöð.“
Þorsteinn kallar lagabreytinguna mislukkaða „frelsun“ leigubílamarkaðains. Alvarlegustu afleiðingarnar séu meint kynferðisbrot en einnig berist fréttir af ofrukkunum og hótunum um líkamsmeiðingar. Hann segir ennfremur:
„Rökstuddur grunur er um að leigubílstjórar utan ábyrgra leigubílastöðva féfletti erlenda ferðamenn m.a. á leið til og frá Keflavíkurflugvelli. Það kemur óorði á íslenska ferðaþjónustu. Þessa þróun þarf að stöðva strax.“
Þorsteinn bendir á að einn flokkur hafi staðið gegn frumvarpinu, Miðflokkurinn:
„Einn stjórmálaflokkur stóð vaktina þegar lögum um leigubifreiðar var breytt og tafði framgang laganna nokkrum sinnum. Nefnilega Miðflokkurinn. Við marg vöruðum við þeim afleiðingum sem ,,aukið frjálsræði” í leigubílaakstri myndu hafa. Við lögðum ofuráherslu á öryggi farþega í hvívetna. En allt kom fyrir ekki. Að lokum máttum við ekki við margnum og málið var keyrt í gegn.“
Þorsteinn leggur til að lögunum verði breytt áður en fleiri alvarleg atvik líta dagsins ljós.
Sjá nánar hér.