Caroline vakti athygli á þessu á TikTok en í myndbandinu sagði hún að dóttir hennar hafi komið heim dag einn fyrir skemmstu og ekki sagt farir sínar sléttar. Hafði kennarinn sagt henni að borða „góða“ matinn fyrst og enda á þeim „slæma“ eins og hún orðaði það.
Með þessu átti kennarinn við að stúlkan ætti fyrst að borða samlokuna og gúrkuna sem var í nestisboxinu og enda á kexkökunni sem var þar einnig. Dóttirin vildi fara hina leiðina, borða kexkökuna fyrst og enda á samlokunni og gúrkunni.
Ákvað Caroline að skrifa bréf til kennarans þar sem hún fór þess á leit að hann hætti þessari afskiptasemi. Skildi hún eftir bréf í nestisboxi dóttur sinnar þar sem fram kom sú skoðun hennar að matur væri bara matur og það væri ekki til neitt sem heitir góður matur eða slæmur matur.
Myndbandið vakti talsverða athygli á TikTok og ekki voru allir á eitt sáttir með viðbrögð móðurinnar. Aðrir hrósuðu henni þó fyrir að vera með bein í nefinu.
„Ég er alveg viss um að kennarinn hafi ekki ætlað sér að vera leiðinlegur. Kannski hefði verið betra að ræða þetta bara við hann, í stað þess að skilja eftir bréf þar sem launfrekjan skín í gegn,“ sagði einn.
„Sem kennari þá áttu 100% rétt á þessari athugasemd. Það að flokka mat sem „góðan“ og „slæman“ getur leitt af sér skaðlegar neysluvenjur,“ sagði annar.