Í síðustu viku var hann sakfelldur fyrir 13 nauðganir. Yngsta fórnarlambið var 13 ára. Refsing hans verður tilkynnt síðar en víst er að hann á þungan fangelsisdóm yfir höfði sér.
Fórnarlömb hans komu fyrir dóm og skýrðu frá níðingsverkum hans. Eitt fórnarlambið sagði að Mitchell hefði sagt við hana: „Mér er sama um líf mitt. Þú varst að hitta djöfulinn.“ Því næst batt hann hana og nauðgaði.
Í september 2023 var hann gripinn glóðvolgur þegar einu fórnarlamba hans tókst að sleppa frá honum þegar hann reyndi að nauðga henni.
Stuart Cundy, yfirlögregluþjónn hjá Lundúnalögreglunni, sagði í yfirlýsingu að málið sé mikið áfall og að honum bjóði við hegðun Mitchell og harmi þann sársauka sem hann hafi valdið fórnarlömbum sínum. Þau hafi sýnt mikið hugrekki með því að stíga fram og bera vitni fyrir dómi.
Mitchell var rekinn úr starfi í desember síðastliðnum.
Lögreglan rannsakar nú hvernig stendur á því að hann var ráðinn sem lögreglumaður því hann gerst sekur um nauðganir áður en hann gekk til liðs við Lundúnalögregluna.