Friðjón segir að stundum komi upp aðstæður þar sem við þurfum að vera tilbúin að leggja til hliðar þær áætlanir sem við höfum þegar gert og byrja með hreint borð. Til séu dæmi um stjórnendur farsælla fyrirtækja sem lýsa þeirri áskorun að þurfa að hugsa alla hluti upp á nýtt í þeim tilgangi að ná árangri.’
„Það er að hluta til sú staða sem stjórnendur Reykjavíkurborgar standa frammi fyrir í dag. Það er ljóst að forsendur aðalskipulags Reykjavíkur til ársins 2040 eru brostnar, bæði vegna aukinnar eldvirkni í námunda við höfuðborgarsvæðið og ekki síður vegna mannfjöldaþróunar.“
Í grein sinni bendir Friðjón á að aðalskipulag borgarinnar til ársins 2040 hafi verið samþykkt haustið 2021, fyrir rúmum tveimur árum. Í lok þess árs hefði miðspá Hagstofunnar verið á þann veg að við yrðum 445 þúsund eftir tuttugu ár en í fyrra var því spáð að við verðum 520 þúsund eftir 20 ár.
„Á aðeins tveimur árum hafði mannfjöldaspá Hagstofunnar aukist um 75 þúsund manns. Hlutur Reykjavíkur í þeirri fjölgun er líklega um 27 þúsund manns. Á höfuðborgarsvæðinu öllu er þessi tala um 48 þúsund. Það er eins og íbúafjöldi Hafnarfjarðar og Garðabæjar bætist við vænta íbúafjölgun höfuðborgarsvæðisins til næstu 20 ára. Það mun ekki ganga eftir í því skipulagi sem núverandi meirihluti í Reykjavík hefur sett upp fyrir Reykjavík eða höfuðborgarsvæðið í heild.“
Hann vitnar svo í orð jarðfræðinga sem segja að búast megi við jarðhræringum á Reykjanesskaga næstu áratugi, jafnvel árhundruð.
„Þá blasir við að aðalskipulag Reykjavíkur og vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins þarfnast endurskoðunar. Þéttingarstefnan ein mun ekki duga til og það er ljóst að flugvöllurinn verður í Vatnsmýrinni næstu 20 árin að minnsta kosti. Þess vegna þurfum við meðal annars að líta til þess að byggja upp á Geldinganesi og á Kjalarnesi, huga að aukinni byggð í Úlfarsárdal og flýta Sundabraut eins og mögulegt er,“ segir hann.
Friðjón segir að hvað sem líður einstaka svæðum sem hægt er að byggja þá liggi fyrir að við þurfum að hugsa hlutina upp á nýtt þegar kemur að skipulagsmálum í Reykjavík.
„Meirihlutinn í borginni lokar augunum fyrir framtíðinni og hvað er í vændum. Lokar augunum fyrir þróuninni og lokar augunum fyrir umhverfinu og breyttum veruleika. Allt er það gert til að þurfa ekki að viðurkenna að sú einstrengingslega stefna sem borgarbúar hafa hafnað trekk í trekk er gjaldþrota.“
Friðjón segir það liggja fyrir að umferðin í borginni sé sprungin og húsnæðismarkaðurinn sé í heljargreipum.
„Við vitum einnig að meirihlutinn, sem nú er undir stjórn framsóknarmanna, hefur ekki aðeins neitað að breyta um stefnu eins og núverandi borgarstjóri lofaði, heldur virðast framsóknarmenn í borginni hafa sporðrennt öllum stefnumálum meirihluta Dags B. Eggertssonar án þess að blikna. Við vitum að ekkert mun í raun og veru breytast fyrr en Sjálfstæðisflokkurinn kemur aftur að stjórn og skipulagi Reykjavíkurborgar.“