Paul, sem er 46 ára og lék hinn harðsnúna Arthur Shelby í þáttunum, var myndaður á dögunum og er óhætt að segja að hann hafi litið betur út.
Leikarinn komst í kast við lögin fyrir skemmstu eftir að hafa verið gripinn með eiturlyf í fórum sínum, þar á meðal krakk, amfetamín og lyfseðilsskyld lyf. Hann játaði sök í málinu og var dæmdur til að greiða 1.345 pund í sekt, um 230 þúsund krónur.
Peaky Blinders eru af mörgum taldir einhverjir bestu þættir sem framleiddir hafa verið á þessari öld en þeir gerast í Birmingham á Englandi eftir fyrri heimsstyrjöldina. Segja þeir frá Shelby-glæpafjölskyldunni; meðal annars Tommy (Cillian Murphy) og bræðrum hans Arthur (Anderson) og John (Joe Cole).