Þetta er nýjasta dæmið um hvernig aukin notkun og vinsældir gervigreindar sendu verð hlutabréfa fyrirtækisins nánast upp til skýjanna.
CNBC segir að verð eins hlutabréfs hafi farið í 739 dollara og hafi heildarverðmæti fyrirtækisins farið í 1.830 milljarða dollara en heildarverðmæti Google var á sama tíma 1.820 milljarðar dollara.
Nvidia var áður þekkt fyrir að framleiða skjákort. Verðmæti hlutabréfa fyrirtækisins hefur hækkað um rúmlega 221 prósent á síðustu 12 mánuðum og það er allt fyrrnefndri örflögu að þakka. Fyrirtæki á borð við Amazon og Google nota mikið af þeim í netþjónustur sínar.
Nvidia er nú þriðja verðmætasta bandaríska fyrirtækið. Apple og Microsoft eru stætti.