Mirror skýrir frá þessu og segir að í myndbandinu sjáist ungt barn vaxa nakta, fullorðna konu. Lögreglan hvetur þá sem rekast á upptökuna eða kyrrmyndir úr henni til að láta eiga sig að vista myndefnið eða dreifa því.
Á upptökunni sést barnið sjá um háreyðingu með vaxi á konunni.
Fyrir sex árum kynnti lögreglan í New Jersey verkefnið „Operation Safety Net“ til sögunnar en það miðar að því að hafa uppi á barnaníðingum. Á fyrstu þremur mánuðum verkefnisins voru 79 handteknir grunaðir um vörslu eða dreifingu barnakláms. Lögreglan taldi að 10 af hinum handteknu hafi verið mjög virkir í að selja aðgang að líkama barna.