Stórlið Manchester United og Liverpool ætla bæði að reyna við varnarmanninn öfluga Marc Guehi í sumarglugganum.
Frá þessu greinir Telegraph en Guehi er á mála hjá Crystal Palace og er varafyrirliði liðsins.
Guehi spilaði með Chelsea frá 2007 til 2021 en fékk aldrei tækifæri með liðinu í ensku úrvalsdeildinni.
Hann samdi við Palace 2021 og hefur staðið sig frábærlega og er nú á óskalista mun stærri liða.
Guehi er aðeins 23 ára gamall og hefur spilað níu landsleiki fyrir England undanfarin tvö ár.