„Hafið er ekkert grín,“ segir Tatjana Jastsuk, leiðsögumaður hjá Aurora Tours sem býður upp á ferðir fyrir rússneskumælandi ferðamenn, meðal annars. Hún var með hóp ferðafólks við Arnarstapa í gær en þar steyptust öldur yfir fólkið. Meðal ferðamanna úr hópnum sem vill láta nafn síns getið er Hector Castro.
Að sögn Tatjönu sakaði engan við þetta, það er sagt að enginn verði verri þó hann vökni, en þó er talið að aðstæður sem þessar geti verið hættulegar. Atvikið er til umræðu í Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar. Þar gagnrýna sumir að fólk fari svo nálægt sjónum í slíkum öldugangi. „Kannski ekki voða sniðugt að vera á sjálfri brúninni við þessar aðstæður, það er líka augljós sprunga í henni,“ segir einn í ummælum þar. Annar segir háttalagið vera vitleysisgang.
Hvað sem því líður má sjá atvikið í myndbandi hér fyrir neðan.