Svefnfriði nokkurra íbúa í Urriðaholti var raskað síðustu tvær nætur vegna þjófavarnar í bíl í hverfinu.
Fljótlega kom í ljós hvaðan lætin komu en lottó konungurinn geðþekki Vignir Freyr Andersen birti færslu í íbúahópi hverfisins og baðst afsökunar, en lætin komu til vegna bilaðs skynjara í bíl hans.
„Af gefnu tilefni langar mig að biðja nágranna mína afsökunar á bílflauti í þjófavörninni í bílnum hjá mér síðustu tvær nætur sem orsakaðist af biluðum skynjara í húddinu á bílnum hjá mér. Ég er nú búinn að skipta um skynjarann og vona ég innilega að ég valdi ekki frekari ónæði og raski ljúfum nætursvefni nágranna minna hér í nálægð Keldugötunnar. Við segjum bara 7,9,13 að þetta sé komið í lag og allir sofi vel. Með kærri kveðju, Vignir A.“
Spurning um að velja tölurnar 7, 9, 13 í næsta lottóútdrætti.