fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Davíð segir vettlingatök ekki duga lengur í málefnum ungra afbrotamanna – „Þegar menn á borð við Bjössa í World Class og Jói Fel ráða ekki við ástandið“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 21. febrúar 2024 13:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hvenær ætlum að fara gera eitthvað af alvöru í málefnum ungra afbrotamanna hér á landi og þá meina ég af alvöru þegar það liggur ljóst fyrir að útköll sérsveitarinnar aukast til muna á milli ára vegna vopnaburðar? Staðreyndin er þessi að harkan er að aukast í undirheimunum og vopnaburður líka, þá duga engin vettlingatök lengur,“

segir Davíð Bergmann starfsmaður Fjölsmiðjunnar í pistli á Vísi.

Segist Davíð hafa velt þessu fyrir sér eftir að hann las grein „um ungu mennina í World Class á dögunum sem voru að gera allt vitlaust þar. Þar sem var grunur um hnífaburð og þessir sömu aðilar hafa komið ítrekað við sögu vegna hnífa og skotvopnaburðar hjá lögreglu að undanförnu. Það þurfti meira að segja að kalla til sérsveit vegna þeirra. Þá fór ég að velta fyrir mér hvert erum við komin í þessum málaflokki. Þegar menn á borð við Bjössa í World Class og Jói Fel ráða ekki við ástandið og það þarf að kalla til sérsveitina. Búum við í aumingja samfélagi, þar sem er ekki hægt að taka á málunum af festu, er það málið? Þar sem ofbeldismaður hefur orðið meira vægi en hinn almenni borgari er þetta veruleikinn og er hægt að sætta sig við það.“

Spyr Davíð hvenær sé komið nóg af röfli og tali um rannsóknir um hitt og þetta og samanburði við önnur lönd „sem hefur ekkert gert fyrir okkur hingað til í þessum málaflokki, ætlum við í alvörunni að tala um þetta út í það óendanlega og hvenær er komið nóg. Ég nenni ekki lengur að vera í einhverju diplómatísku röfli heldur vil ég fara að tala um þetta á mannamáli. Það er orðið löngu tímabært að vera í raunheimi um þessa hluti og hætta að tala og fara að framkvæma.“

Segir umræðuna deyja út fljótlega eftir fréttaflutning

„Allur fréttaflutningur af svona málum hefur verið í áratugi í fyrirsagna stíl, svo deyr umræðan út á einum til tveimur dögum svo bíðum við eftir næsta áfalli og þá endurtekur sagan sig og hún skilar engu. Í fyrirsögninni spurði ég verða tveir að verða stungnir og báðir dauðir, áður en við förum að gera eitthvað viti í þessum málaflokki? Nei í alvörunni þeir eru þó nokkrir nú þegar sem hafa verið stungnir og jafnvel látið lífið hvað á þetta að ganga lengi svona. Er ekki orðið löngu tímabært að vakna og gera það sem gera þarf til að stoppa þessa þróun að fullri alvöru,“ segir Davíð. 

Segist hann enn vera að bíða eftir svari frá Dómsmálaráðherra eftir að Davíð sendi honum beiðni um viðtal 11. desember 2023 akkúrat til að ræða þessi mál.

Segir Davíð lausnina ekki eingöngu eiga að felast í því að lögreglan fái rafbyssur og auknar forvirkar rannsóknarheimildir “njósnir.“ Segir hann að í hans huga sé þetta ekki eina svarið við þessum vanda.

„Það er nokkuð ljóst að við getum ekki beðið til ársins 2028-29 þegar nýja fangelsið á að vera risið með að gera eitthvað að viti í þessum málum. Það þarf að gera eitthvað að alvöru núna og helst í gær. Ég held að þolinmæði samfélagsins muni ekki vera til staðar til ársins 2028-29 ef þróun vopnaburðar eigi eftir að versna eins og tölur gefa til kynna af þessum svokölluð “sérfræðingum” sem ég held að séu í afskaplega takmörkuðum tengslum við þennan heim.“

Segir engan hafa áhuga á málaflokknum

Að mati Davíðs er staðreyndin sú að það er enginn einasti áhugi á þessu málaflokki. Velferðarnefnd þingsins sýni þessu engan áhuga þó svo að Davíð hafi ítrekað sent þeim ákall um að taka á þessum málum. Við verðum að fara nálgast þennan málaflokk með nýrri nálgun það þarf engar lagabreytingar til, þetta rúmast innan 57. greinar almennra hegningarlaga. 

„Það sem vantar upp á hér á landi er viðhorfsbreyting og skapa nýja hefð þegar það er verið að taka á ungum afbrotamönnum. Það er einmitt það sem fangelsismálastjóri hefur verið að kalla eftir síðustu ár. Hann talar um erfiða unga drengi sem þarf að sinna og taka á. Ég er ekki að endilega að tala um fangelsisvist heldur miklu frekar fræðslu og leiðbeiningu en ef það dugar ekki til, þarf að stífa ramman svo um munar um svona brotamenn.

Dómsmálaráðherra í annað sinn er ég með ákall til þín að halda tveggja daga ráðstefnu um unga afbrota á aldrinum 15-24 ára. Þá getum kannski markað okkur stefnu eftir það í þessum málum að alvöru. Farið að taka á málunum eins og siðmenntaðar þjóðir gera. Við getum meira segja orðið í fararbroddi á heimsvísu í þessum málaflokki vegna þess að mannauðurinn og landið bíður upp á ótrúleg tækifæri í þessum efnum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest
Fréttir
Í gær

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“