BBC skýrir frá þessu og segir að flugfélögin hafi frest til 26. febrúar til að verða við þessar kröfu.
Flugmálayfirvöld gáfu sjö flugfélögum fyrirmæli um að fara eftir þessu og gera nauðsynlegar ráðstafanir svo farþegar fái farangur sinn innan þessara tímamarka.
Gripið er til þessara aðgerða eftir að flugmálayfirvöld fylgdust með því á sex stórum indverskum flugvöllum hversu langur tími leið frá lendingu þar til farþegar fengu farangur sinn. Var fylgst með þessu í tengslum við 3.600 flug.
Segja flugmálayfirvöld að fyrstu töskurnar eigi að vera komnar á færibandið innan 10 mínútna frá því að slökkt er á hreyflum flugvélarinnar og þær síðustu ekki síðar en 30 mínútum síðar.