Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Bandaríska geimferðastofnunin NASA sendi frá sér á föstudaginn.
Þetta er annar hlutinn, af þremur, í Chapea-verkefninu (Crew-Health and Performance Exploration).
Sjálfboðaliðarnir munu dvelja í Mars Dune Alpha, sem er þrívíddarprentað umhverfi, sem á að líkjast þeim aðstæðum og áskorunum sem geimfarar munu takast á við á Mars.
Mars Dune Alpha er við Johnson Space Center í Houston.
Meðal þeirra áskorana sem sjálfboðaliðarnir verða að takast á við eru takmarkaðar auðlindir, útbúnaður sem bilar og seinkun í samskiptum við jörðina en það tekur útvarpsbylgjur töluverðan tíma að berast á milli jarðarinnar og Mars.
Meðal verkefna sjálfboðaliðanna verður að rækta grænmeti, stunda líkamsrækt og tryggja búsetuskilyrðin.
Leitað er að heilsuhraustum bandarískum ríkisborgurum, eða fólki sem er með dvalarleyfi í Bandaríkjunum, sem reykir ekki og er á aldrinum 30 til 55 ára. Umsækjendur verða að tala góða ensku og hafa áhuga á að taka þátt í einstöku og gefandi verkefni, auk áhuga á að leggja sitt af mörkum við undirbúning NASA á fyrstu mönnuðu geimferðinni til Mars.