Systkinin Jesus Jr, fimm ára, og Yesenia Dominguez, þriggja ára, sáust síðast á lífi sumarið 2018. Lögreglan hafði leitað þeirra síðan en það var ekki fyrr en nýlega sem leitin bar árangur.
Þá fannst lík Yesenia í steypuklumpi sem var geymdur í geymslu. Lík Jesus fannst í ferðatösku sem var í skotti bíls sem komið var með í brotajárnsvinnslu.
Fyrir aðeins viku sagði talsmaður lögreglunnar í Pueblo að ekkert hefði spurst til systkinanna síðan í júlí 2018.
Lík Yesenia fannst þegar eitt rýmið í Kings Storage var tæmt þann 20. janúar síðastliðinn vegna þess að leigan hafði ekki verið greidd. Gámur, fullur af steypu, var í rýminu og fannst lík Yesenia í steypunni.
Lögreglan yfirheyrði Dominguez og Minjarez í lok janúar.
Þann 6. febrúar leiddi rannsóknin lögregluna að brotajárnsvinnslu einni þar sem bíll, sem Minjarez hafði átt, hafði verið skilinn eftir. Lík Jesus Jr fannst í ferðatösku sem var í skotti bifreiðarinnar.