fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
Pressan

Sjúklingarnir öskra af sársauka tímunum saman

Pressan
Mánudaginn 19. febrúar 2024 11:33

Staðan á Gaza er mjög alvarleg og til dæmis verkjalyf af skornum skammti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þar sem okkur vantar verkjalyf þurfum við að skilja sjúklingana eftir öskrandi af sársauka, tímunum saman,“ segir læknir á Gaza-ströndinni í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC.

Fátt bendir til þess að stríð Ísraels og Hamas muni enda í bráð og er staðan víða á Gaza-ströndinni orðin alvarleg. Á sjúkrahúsum er eitt helsta áhyggjuefnið skortur á nauðsynlegum lyfjum, til dæmis verkjalyfjum sem geta linað þjáningar þeirra verst særðu.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, segir að ástandið sé mjög alvarlegt. Alls eru 23 sjúkrahús á svæðinu óstarfhæf og 12 eru starfhæf að hluta vegna loftárása og skorts á nauðsynjum. Nú síðast varð Nasser-spítalinn á suðurhluta Gaza óstarfhæfur í gær.

Ísraelsher hefur rökstutt árásir sínar á sjúkrahús þannig að liðsmenn Hamas noti þau sem skjól fyrir starfsemi sína. Í yfirlýsingu til BBC segir Ísraelsher að mannúðaraðstoð sé hleypt inn á svæðið með nauðsynjar en WHO segir hins vegar að það hafi gengið hægt og illa.

Staðan á sjúkrahúsum er mjög alvarleg og dæmi um að allt að þrefalt fleiri dvelji á sjúkrahúsum n pláss er fyrir.

Yousef al-Akkad, framkvæmdastjóri Gaza European Hospital í borginni Khan Younis, segir að ástandið nú hafi aldrei verið jafn alvarlegt síðan stríðið braust út í október. Sjúklingar fylli sjúkrahúsið og margir þurfi að gera sér að góðu að liggja á teppum á gólfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því
Pressan
Í gær

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera