Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem var unnin af Viginum-stofnuninni, sem heyrir undir franska utanríkisráðuneytið. Hjá Vigium starfa hernaðar- netöryggissérfræðingar að sögn The Guardian og The Economist.
Stofnunin fylgdist með samtökunum frá því í september á síðasta ári þar til í desember. Á þeim tíma dældu samtökin út sögum þar sem úkraínsk yfirvöld voru gagnrýnd og innrás Rússa í Úkraínu var varin.
Viginum fann meðal annars franska rás á samfélagsmiðlinum Telegram. Þessi rás er hluti af samtökunum og á meðan á rannsókninni stóð voru allt að níu greinar birtar á rásinni á hverri klukkustund.
Sumar af heimasíðunum hafa verið til árum saman og hafa dreift áróðri og fölsku upplýsingum í Frakklandi, Þýskalandi og Póllandi. Fleiri síður bættust við eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu.
Það eru svo sem engin ný tíðindi að frönsk yfirvöld rekist á falsfréttir og áróður frá Rússum. Í því sambandi má nefna að síðasta sumar fór saga á kreik, sem hræddi marga túrista, um að veggjalýs hefðu nánast tekið neðanjarðarlestir og AirBnb í París yfir. Var sagt að svo mikið væri af veggjalús að þær væru farnar að vera á ferðinni í dagsbirtu. Einnig bárust svipaðar fréttir frá Lundúnum í framhaldinu.
Heimildarmenn innan franska hersins segjast sannfærðir um að útsendarar rússneskra yfirvalda hafi verið viðriðnir þetta og ýtt undir ótta fólks með því að dreifa falsfréttum og greinum um að veggjalýsnar hefðu náð sér svona vel á strik af því að Frakkar væru hættir að nota rússnesk veggjalúsaeitur vegna refsiaðgerða Vesturlanda gegn Rússlandi.