En samkvæmt niðurstöðum nýlegrar rannsóknar þá gerði lyfið bara illt verra því þeir sem tóku það voru 11% líklegri til að deyja af völdum COVID-19 en þeir sem tóku það ekki. The Guardian skýrir frá þessu.
Í rannsókninni, sem hefur verið birt í vísindaritinu Biomedicine & Pharmacotherapy, kemur fram að vísindamennirnir áætla að um 17.000 manns í sex löndum, þar á meðal Bandaríkjunum, hafi tekið lyfið eftir að hafa veikst af COVID-19 og hafi fólkið látist.
Læknar sem ávísuðu lyfinu við COVID-19 gerðu það án þess að nokkrar sannanir lægju fyrir um að lyfið virkaði gegn COVID-19. Benda vísindamennirnir á að þetta sé eitthvað sem þurfi að hafa í huga þegar heimsfaraldrar koma upp í framtíðinni.
Vísindamennirnir notuðu almenna gagnabanka til að komast að hversu margir COVID-19 sjúklingar voru lagðir inn á sjúkrahús í upphafi faraldursins. Þeir fóru síðan kerfisbundið yfir 44 rannsóknir til að reikna út hvort notkun malaríulyfsins hafi haft einhver áhrif. Niðurstaðan var að það jók dánartíðnina um 11% ef það var notað. Þessi útreikningur byggist á 16.990 andlátum á sjúkrahúsum í Bandaríkjunum, Belgíu, Frakklandi, Ítalíu, Spáni og Tyrklandi.