fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Pressan

Dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir að drepa eiginkonu sína með því að berja hana með hamri og kveikja í henni

Pressan
Föstudaginn 16. febrúar 2024 22:00

Helen Clark

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áttræður ára rafmagnsverkfræðingur var í síðustu viku dæmdur í tæplega 22 ára fangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína til rúmlega 50 ára á „hrottalegan og miskunnarlausan hátt“ vitandi að hún myndi „þjást mikið og hryllilega“.

Sky News segir að maðurinn, David Clarke, hafi verið dæmdur í 21 árs og átta mánaða fangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína, Helen, sem var 77 ára. Miðað við aldur hans, þá verður að teljast ólíklegt að hann muni nokkru sinni sleppa úr fangelsi. Helen lést af völdum áverka, sem hún hlaut þegar hún var lamin með hamri, og brunasárum sem hún hlaut þegar David kveikti í henni inni í bíl þeirra.

Þau gengu í hjónaband 1968 og eiga fjögur börn.

Sonur þeirra, David, sagði í yfirlýsingu að foreldrar hans hafi alltaf verið að rífast og að faðir hans hafi stundum sýnt af sér ofbeldisfulla hegðun sem hafi beinst gegn móður hans. Hann sagðist þó hafa haldið að þau hefðu „mýkst“ með aldrinum.

Fyrir dómi kom fram að nokkrum dögum fyrir morðið hefðu þau byrjað að rífast af miklum krafti eftir að David sagði Helen að hann hefði haldið framhjá henni nokkrum árum áður og hefði nú í hyggju að fara til Ástralíu til að hitta konuna aftur.

Daginn, sem hann myrti Helen, ók hann með hana til Sketty Lane, undir því yfirskini að þau væru að fara á ströndina, og lamdi hana níu sinnum í höfuðið með hamri. Síðan hellti hann bensíni yfir hana og bar eld að henni og bílnum. Vegfarandi heyrði öskrin í Helen og reyndi að koma hjónunum til bjargar en David hrinti honum í burtu og ók á brott en endaði inni í runna. Þá gaus mikill eldur upp í bílnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Sagði 13 ára syni sínum að hann væri aumingi af því að hann vildi ekki stunda kynlíf með vændiskonu

Sagði 13 ára syni sínum að hann væri aumingi af því að hann vildi ekki stunda kynlíf með vændiskonu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan um bleika ofurbílinn leyst

Ráðgátan um bleika ofurbílinn leyst
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvíthákarl varð manni að bana

Hvíthákarl varð manni að bana
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann