fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Fréttir

Hildur segir að tími sé kominn á Sundabyggð

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. febrúar 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að bæði sé orðið tímabært og skynsamlegt að ræða uppbyggingu Sundabyggðar.

Hildur skrifar aðsenda grein um málið í Morgunblaðið í dag og rifjar upp að ríki og sveitarfélög hafi á síðasta ári undirritað samkomulag um uppbyggingu 35.000 íbúða hérlendis næstu tíu árin. Gerir samkomulagið ráð fyrir að borgin byggi 2.000 íbúðir árlega fyrstu fimm árin og 1.200 íbúðir árlega næstu fimm árin þar á eftir. Voru þessi áform viðbragð við viðvarandi húsnæðisskorti sem fyrirsjáanlegur er til framtíðar.

Staðan orðin önnur og verri núna

„Staðan hef­ur hins veg­ar tekið nokkr­um breyt­ing­um með hliðsjón af jarðhrær­ing­um á Reykja­nesskaga. Ofan á áður þekkta hús­næðisþörf bæt­ist nú bráðavandi Grind­vík­inga. Íbúar sveit­ar­fé­lags­ins bjuggu áður í tæp­lega 1.200 íbúðum í Grinda­vík en þurfa nú að leita hús­næðis ann­ars staðar,“ segir Hildur í grein sinni.

Hildur bendir á að á þriðjudag hafi Sjálfstæðisflokkur lagt fram tillögu í borgarstjórn sem byggist á því að fjölga skilgreindum uppbyggingarsvæðum í aðalskipulagi borgarinnar með hliðsjón af eldsumbrotunum á Reykjanesskaga.

„Jarðhrær­ing­arn­ar hafa þegar sett ýmis upp­bygg­ingaráform á stór­höfuðborg­ar­svæðinu í upp­nám. Auk­inn þrýst­ing­ur hef­ur skap­ast á ný svæði og kall­ar fyr­ir­liggj­andi bráðavandi á hús­næðismarkaði á yf­ir­vegað viðbragð og skyn­sam­lega fyr­ir­hyggju.“

Tímabært og skynsamlegt að ræða

Hildur segir að með tillögunni hafi Sjálfstæðisflokkur sett á dagskrá umræðu um Sundabyggð – nýja íbúðarbyggð á svæðum aðliggj­andi Sunda­braut.

„Mik­il­vægi Sunda­braut­ar hef­ur að und­an­förnu verið und­ir­strikað. Þegar sú mik­il­væga sam­göngu­bót verður að veru­leika opn­ast fjöl­mörg ný upp­bygg­ing­ar­tæki­færi á svæðum aðliggj­andi braut­inni, til dæm­is á Kjal­ar­nesi. Hug­mynd­ina er bæði tíma­bært og skyn­sam­legt að ræða á þess­ari stundu,“ segir Hildur.

Hún bendir hins vegar á að meiri­hluti borg­ar­stjórn­ar hafi ekki treyst sér til að taka af­stöðu til til­lög­unn­ar á fundi borg­ar­stjórn­ar. Var henni þess í stað vísað í nefnd, en Hildur segir að þangað fari al­mennt all­ar góðar til­lög­ur til svæf­ing­ar.

„Und­ir­liggj­andi ástæðan var hin aug­ljósa ósamstaða meiri­hluta­flokk­anna í skipu­lags­mál­um borg­ar­inn­ar. Þau treysta sér ekki til að standa sam­an að at­kvæðagreiðslum um mik­il­væg skipu­lags­mál, enda er sýn flokk­anna á framtíðar­skipu­lag borg­ar­inn­ar gjör­ólík. Það er ljóst að svo ósam­stæður meiri­hluti kem­ur varla nokkru í verk – og und­ir þeirra stjórn mun ekk­ert breyt­ast.“

Hildur segir nauðsynlegt að ráðast í kröft­uga hús­næðis­upp­bygg­ingu um alla borg þar sem ný hverfi eru skipulögð samhliða því að þétta byggð innan hverfa sem hafa til þess svigrúm.

Morgunblaðið ræddi á dögunum við Dr. Bjarna Reynarsson skipulagsfræðing sem sagði að tilefni væri til að endurmeta skipulag á höfuðborgarsvæðinu í ljósi aukinnar eldvirkni suður og austur af svæðinu. Bjarni stýrði meðal annars gerð aðalskipulags Reykjavíkur á árunum 1980 til 2000.

Benti hann á að Geldinganes bjóði upp á um 200 hektara af byggingarlandi sem er álíka stórt svæði og 101 Reykjavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Óttast að kvika flæði í sprungum undir Grindavík og komi upp þar

Óttast að kvika flæði í sprungum undir Grindavík og komi upp þar
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Afhjúpar óhugnanleg tjákn sem unglingar nota á netinu

Afhjúpar óhugnanleg tjákn sem unglingar nota á netinu
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hvernig fjandsamleg yfirtaka Bandaríkjanna á Grænlandi myndi fara fram – „Ekki svæði sem hentar vel til innrásar“

Hvernig fjandsamleg yfirtaka Bandaríkjanna á Grænlandi myndi fara fram – „Ekki svæði sem hentar vel til innrásar“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Notkun á gagnvirkum skjám mun snaraukast

Notkun á gagnvirkum skjám mun snaraukast
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

„Þetta er ein af verstu sviðsmyndunum sem við vorum búin að teikna upp“

„Þetta er ein af verstu sviðsmyndunum sem við vorum búin að teikna upp“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Rýming í Bláa lóninu gekk vel

Rýming í Bláa lóninu gekk vel
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kvikuhlaup hafið á Reykjanesskaga – „Líklegt að eldgos hefjist í kjölfarið“

Kvikuhlaup hafið á Reykjanesskaga – „Líklegt að eldgos hefjist í kjölfarið“