Sky News skýrir frá þessu og segir að lögreglan hafi verið kölluð að heimili Mariah Thomas í Kansas City í Missouri í Bandaríkjunum á föstudaginn vegna kornabarns í andnauð. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang sáu þeir að barnið var með brunasár. Barnið var úrskurðað látið á vettvangi.
Vitni sögðu lögreglunni að Mariah hefði lagt barnið til svefn og fyrir mistök sett hana í ofninn í staðinn fyrir vögguna. Ekki kom fram hvernig slík mistök gátu átt sér stað.