Dpa segir að svissneska lögreglan hafi skýrt frá því á laugardaginn að lík fólksins hafi fundist á föstudaginn um 300 metra fyrir neðan brattan stíg. Fjölskyldunnar hafði verið saknað síðan á fimmtudag.
Hin látnu voru 57 ára kona og 25 ára dóttir hennar og 22 ára sonur hennar. Sonurinn bjó í Lausanne í Sviss en mæðgurnar í Hollandi.
Lögreglan vinnur nú að rannsókn málsins og mun reyna að komast að ástæðu þess að fólki hrapaði til bana.
Rochers de Naye er vinsælt svæði meðal göngufólks. Fjallið er 2.042 metra á hæð og er í vesturhluta Sviss, nærri frönsku landamærunum.