Valur Gunnarsson, fyrrum markvörður Leiknis og NFL sérfræðingur var gestur Íþróttavikunnar að þessu sinni. Farið varið yfir sviðið.
Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson voru venju samkvæmt á svæðinu og ræddu fréttir vikunnar.
Farið yfir þá staðreynd að enn á ný ákvað ÍSÍ sem fær peninga frá íslenska ríkinu að sniðganga KSÍ þegar kom að greiðslum til afreksstarfs.
Rökin hjá ÍSÍ eru að KSÍ sé að drukkna í peningum en KSÍ segir að þetta komi niður á yngri iðkendum. Lang flest börn iðka knattspyrnu þegar kemur að íþróttum á Íslandi.
„Það er verið að deila peningum til fólks, þú átt peninga og færð ekki neitt. KSÍ vill meiri pening til að setja í yngri landsliðin, það er eitt af því mikilvægasta sem við gerum. Það myndi muna miklu,“ sagði Hrafnkell Freyr.
Valur sagði þá sorglega staðreynd ef KSÍ þarf að fara að rukka krakka í yngri landsliðum til að taka þátt í leikjum
„Það er eins og Jörundur Áki sagði, það væri mögulegt að rukka fyrir leikmenn í yngri landsliðum, Það er gert í öðrum íþróttum en manni þætti það ekki boðlegt, það væri spes að detta í það,“ segir Valur.
Helgi tók þá til máls. „Við höfum farið á EM og HM, þetta er svo miklu stærra. Landkynning með sigri Íslands á Englandi, þetta er svo miklu stærra en handbolti og annað.“
Umræðan er hér að ofan.