CNN skýrir frá þessu og segir að lögreglan í Hong Kong sé nú að rannsaka málið. Fram kemur að starfsmanninn hafi farið að gruna að ekki væri allt með felldu þegar hann fékk tölvupóst frá aðila sem sagðist vera hinn breski fjármálastjóri fyrirtækisins.
Í fyrstu taldi starfsmaðurinn að tölvupósturinn væri tilraun til að svíkja út fé. En þessum grun var sparkað langt út í horn þegar hann tók þátt í myndfundi þar sem margir þátttakendanna hljómuðu og líktust vinnufélögum hans. Af þeim sökum féllst hann á að millifæra þessa háu upphæð.
CNN segir að málið bætist í hóp fjölda svipaðra mála þar sem svikahrappar hafa notast við djúpfölsunartækni. Það er að sögn lögreglunnar tækni þar sem gervigreind er notuð til að búa til stafræna „eftirlíkingu“ af manneskju með því að líkja eftir rödd hennar og andliti.