Kristján Berg Ásgeirsson fiskikóngur og eigandi Heitirpottar.is er nýkominn heim frá Mexíkó þar sem ráðstefna Arctic Spas var haldin þetta árið.
Ferðin skilaði góðum árangri því Heitirpottar.is gjörsigruðu alla Evrópu.
„Við vorum lang söluhæsta verslunin og einnig fengum við fyrstu verðlaun fyrir bestu þjónustuna í allri Evrópu, sem okkur þykir betri verðlaun. Þau vetðlaun sýna að við erum bestir í þjónustu í allri Evrópu, en það er erfiðara að vinna þau verðlaun en að selja mest,“ segir Kristján að vonum hæstánægður með ferðina og verðlaunin.
„Sala á heitum pottum á Íslandi er ótrúleg, Kanadamenn og aðrir sem selja heita potta skilja ekki hversu mikið er hægt að selja hér miðað við höfðatölu. En pottamenning okkar er sú mesta í heimi. Sirka einn pottur fyrir hverja 500 íbúa. Sem er heimsmet, en ekki hvað.
Við erum stoltir af þessu. Við höfum aldrei áður unnið tvenn verðlaun á sama árinu, en við erum að vinna þessi verðlaun fimmta árið í röð, sem er sögulegt, þar sem engin önnur verslun innan Arctic Spas hefur unnið þetta tvo ár í röð í 35 ára sögu Arctic Spas í Kanada.
250 manns sóttu ráðstefnuna í ár og klæddu Kristján og félagar hans sig upp sem Mexíkana við verðlaunaafhendinguna við mikinn fögnuð viðstaddra.