fbpx
Föstudagur 25.apríl 2025
Fréttir

Ógnvaldur Pútíns hvetur Rússa til að leika þennan leik í forsetakosningunum til að leika á kerfið

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 8. febrúar 2024 07:00

Alexei Navalny. Mynd: EPA-EFE/SERGEI ILNITSKY

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalny er einn helsti ógnvaldur Vladímír Pútíns, forseta, sem hefur reynt að láta ráða hann af dögum. Það tókst ekki svo Pútín lét stinga honum í fangelsi þar sem hann hefur nú verið í þrjú ár. Raunar er hann ekki í fangelsi, heldur þrælkunarbúðum í Síberíu.

En Navalny lætur þetta ekki halda aftur af sér og hefur nú blandað sér í forsetakosningarnar sem fara fram í mars. Þær verða auðvitað ekki spennandi því lýðræði er nú ekki við lýði í Rússlandi og engar líkur á að Pútín ætli að gefa völd sín eftir. Kjörstjórn landsins hefur komið í veg fyrir framboð sumra þeirra sem vildu bjóða sig fram og mega þeir hinir sömu kannski teljast heppnir að Pútín lét ekki koma þeim fyrir kattarnef. Það er svo sem ekki um auðugan garð að gresja í þessum efnum því flestir stjórnarandstæðingar hafa flúið land eða eru í fangelsi eins og Navalny.

Navalny birti nýlega nokkrar færslur á X þar sem hann segir að forsetakosningarnar séu góður vettvangur til að mótmæla Pútín. Hann hvetur kjósendur, sem styðja Pútín ekki, til að streyma á kjörstað á sama tíma, klukkan 12.00. Rökin fyrir þessu eru að hans sögn að það sé ekki nægilegt að greiða atkvæði gegn Pútín því úrslitunum verði hvort sem er hagrætt.

En langar raðir, þar sem andstæðingar Pútíns standa til að greiða atkvæði gegn honum, munu að mati Navlny senda mikilvæg skilaboð: „Þetta gæti verið sterk sýning á stemmningunni meðal þjóðarinnar. Hinir raunverulegu kjósendur gegn skáldskapnum. Alvöru fólk, sem stendur í röð til að greiða atkvæði gegn Pútín, gegn hinum fölsuðu „já-atkvæðum“,“ skrifaði Navalny.

Stór mótmæli eru ákaflega sjaldgæf í Rússlandi vegna hættunnar á að fólk verði handtekið, sérstaklega eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. En Navalny segir að mótmæli af þessu tagi verði örugg vegna þess að fólki sé heimilt að mæta á kjörstað og raunar hvetji yfirvöld fólk til að gera það. Auk þess muni margir mæta á kjörstað um miðjan dag og því „verður útilokað að bera kennsl á þá sem greiða atkvæði gegn Pútín,“ skrifaði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Nefið rotnaði af frægri leikkonu – Skuggaleg tískubylgja í lýtalækningum í Kína

Nefið rotnaði af frægri leikkonu – Skuggaleg tískubylgja í lýtalækningum í Kína
Fréttir
Í gær

Borgaryfirvöld í Vilníus gera rýmingaráætlun vegna hugsanlegrar innrásar – Breikka vegi og brýr

Borgaryfirvöld í Vilníus gera rýmingaráætlun vegna hugsanlegrar innrásar – Breikka vegi og brýr
Fréttir
Í gær

Sakaði frænda stjúpmóður sinnar um áreitni á veitingastað í Garðabæ – Hönd fór yfir rasssvæðið

Sakaði frænda stjúpmóður sinnar um áreitni á veitingastað í Garðabæ – Hönd fór yfir rasssvæðið
Fréttir
Í gær

Sólveig Anna segir sig úr Sósíalistaflokknum eftir svívirðingar – „Langt síðan ég hef séð svona mikið hatur á mér“

Sólveig Anna segir sig úr Sósíalistaflokknum eftir svívirðingar – „Langt síðan ég hef séð svona mikið hatur á mér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðni rifjar upp samtal: „Við hlustuðum ekki frekar en fyrri daginn“ – Segir lýsingar Úlfars vera sláandi

Guðni rifjar upp samtal: „Við hlustuðum ekki frekar en fyrri daginn“ – Segir lýsingar Úlfars vera sláandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tvö kaffihús Starbucks opna í miðbæ Reykjavíkur

Tvö kaffihús Starbucks opna í miðbæ Reykjavíkur