Sky News segir að lögreglan hafi fundið hluta af líkamsleifum manns þar sem hýenan gerði árás. Að sögn ættingja hans var hann að afla eldiviðar þegar dýrið réðst á hann.
Hún réðst einnig á tvo aðra. Annar þeirra, háskólastúdent, minnsti þumalfingur í baráttunni við dýrið.
Hýenan var felld skömmu síðar og var hræ hennar krufið til að rannsaka hvort hún hafi verið með hundaæði eða aðra sjúkdóma. Hundaæði getur gert sýkt dýr árásargjörn og hneigð til að bíta.
Árásir hýena hafa færst mjög í aukana í úthverfum Nairobi að undanförnu og hafa yfirvöld því sent frá sér leiðbeiningar til almennings um hvernig á að mæta dýrunum. Samkvæmt þessum leiðbeiningum á fólk ekki að hreyfa sig fyrr en þær gera það og snúa andlitinu að þeim allan tímann og hafa hátt, vera árásargjarnt í fasi til að reyna að hrekja dýrin á brott.