Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að hörðum árekstri sem varð á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar í gær, sunnudaginn 4. febrúar. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum endaði annar bíllinn á hvolfi.
Tilkynning barst um málið klukkan 15:08 í gær. Þetta var tveggja bíla árekstur þar sem öðrum bílnum hafði verið ekið norður Sæbrautina en hinum vestur Holtaveginn þegar árekstur varð með þeim.
Að sögn lögreglu er ágreiningur um stöðu umferðarljósa á gatnamótunum þegar áreksturinn varð. Eru vitni því beðin um að gefa sig fram við lögreglu.
„Þau sem geta gefið upplýsingar um áreksturinn eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið gudrun.jack@lrh.is,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.