Space.com segir að tunglfarið hafi verið smíðað af fyrirtækinu Intuitive Machines í Houston í Texas. Því verður skotið á loft með Falcon 9 frá Cape Canaveral Space Force Station einhvern tímann á þriggja daga tímabili um miðjan mánuðinn en þá er opinn „gluggi“ fyrir geimskot.
Óháð því á hvað degi, af þessum þremur, geimskotið mun eiga sér stað, þá verður reynt að lenda geimfarinu á tunglinu þann 22. febrúar.
Ef ekki tekst að skjóta Falcon 9 á loft í þriggja daga glugganum verður að bíða þar til í mars þegar næsti skotgluggi opnast.
Ætlunin er að lenda Nova-C nærri gíg sem heitir Malapert A. Hann er ekki fjarri suðurpól tunglsins. Vísindamenn hafa mikinn áhuga á þessu svæði því talið er að þar sé mikið magn af ís.
Um borð í Nova-C eru sex mælitæki frá bandarísku geimferðastofnuninni NASA sem eiga að afla vísindalegra gagna sem munu nýtast við að koma upp varanlegri búsetu fólks á og nærri tunglinu.