fbpx
Miðvikudagur 16.apríl 2025
FréttirLeiðari

Hafnfirðingur tekinn með heróín á Akureyri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 30. janúar 2024 15:30

Héraðsdómur Norðurlands eystra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur birt í Lögbirtingablaðinu fyrirkall og ákæru gegn 37 ára gömlum manni frá Hafnarfirði.

Manninum er gefið að sök að hafa miðvikudaginn 15. mars árið 2023 farið inn í anddyri Sundlaugarinnar á Akureyri og stolið skóm úr skóhillu.

Í annan stað er maðurinn sakaður um að hafa haft í fórum sínum 0,33 grömm af heróíni en efnið fannst við leit á honum á lögreglustöðinni á Akureyri eftir handtöku.

Fáheyrt er að heróín finnist á Íslandi og hefur það lengi ekki talið vera í umferð hér.

Manninum er gert að mæta fyrir Héraðsdóm Norðurlands eystra á Akureyri þann 12. mars næstkomandi.

DV hefur áður fjallað um þennan heróínfundSamkvæmt þeirri frétt var manninum gefinn kostur á að losna frá málinu með því að greiða 75.000 krónur í sekt. Samkvæmt heimildum DV gerði maðurinn sér enga grein fyrir því að hann væri með heróín undir höndum heldur taldi hann sig vera að kaupa skammt af MDMA, lyfi með alsæluvirkni. Við greiningu kom í ljós að um heróín var að ræða.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Einræðisáætlun Trump er tilbúin og hann fylgir henni

Einræðisáætlun Trump er tilbúin og hann fylgir henni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Piltur sýknaður af nauðgun þrátt fyrir ósamræmi í framburði og þó að vitni hafi legið vakandi við hlið þeirra á meðan meint brot átti sér stað

Piltur sýknaður af nauðgun þrátt fyrir ósamræmi í framburði og þó að vitni hafi legið vakandi við hlið þeirra á meðan meint brot átti sér stað
Fréttir
Í gær

Harmleikurinn í Garðabæ: Hin grunaða sögð hafa átt í stormasömu sambandi við foreldra sína

Harmleikurinn í Garðabæ: Hin grunaða sögð hafa átt í stormasömu sambandi við foreldra sína
Fréttir
Í gær

Gríðarlegur rottugangur á heimili Hackman hjónanna – Olli dauða Betsy

Gríðarlegur rottugangur á heimili Hackman hjónanna – Olli dauða Betsy