fbpx
Mánudagur 06.janúar 2025
Pressan

Stóra tedeilan veldur titringi – „Svívirðileg hugmynd“

Pressan
Föstudaginn 26. janúar 2024 04:16

Þeir líta vel út þessi tebollar. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska sendiráðið í Lundúnum hefur gagnrýnt nýja rannsókn bandarísks vísindamanns og segir að í henni sé sett fram „svívirðileg hugmynd“ sem „ógni grunnstoðum hins sérstaka sambands ríkjanna“.

Michelle Francl, prófessor í efnafræði við Bryn Mawr háskólann í Pennsylvania, gerði rannsóknina. Í henni kemst hún að þeirri niðurstöðu að til að gera hin fullkomna tebolla þurfi að setja örlítið salt og smá sítrónu út í teið.

Sky News skýrir frá þessu og segir að hún hafi einnig komið með önnur ráð sem eru ekki eins umdeild. Þar á meðal er að nota lága og breiða bolla til að halda teinu heitu lengur.

Í samtali við The Guardian sagði hún að rétt sé að hita bæði bollann og mjólkina og að mjólkinni skuli hellt í bollann á eftir teinu. Hún sagði einnig að best sé að nota laus teblöð en ef fólk noti tepoka skuli það velja stóra því það geri að verkum að teið geti hreyft sig meira í vatninu.

En bandaríska sendiráðið tók þessar ráðleggingar hennar um að bæta salti út í teið illa og skrifaði í færslu á samfélagsmiðlinum X: „Við getum ekki setið þögul hjá þegar svona svívirðileg hugmynd ógnar grunnstoðum hins sérstaka sambands ríkjanna. Te er lífsvökvi góðra samskipta, heilög tengsl sem sameina þjóðir okkar.“

Síðan heldur færslan áfram en í lok hennar koma Bandaríkjamennirnir með svolítið sem fer væntanlega illa í tedrekkandi Breta og ekki víst að allir sjái húmorinn í þessu: „Af þessum sökum viljum við fullvissa hið góða fólk í Bretlandi um að það er ekki opinber stefna Bandaríkjanna að taka undir þetta álit um að bæta eigi salti í þjóðardrykk Breta. Þetta verður aldrei opinber stefna Bandaríkjanna. Sameinumst í traustri samstöðu okkar og sýnum heiminum að þegar það kemur að tei, þá stöndum við sameinuð. Bandaríska sendiráðið mun halda áfram að gera te á réttan hátt, með því að gera það í örbylgjuofni.“

Skrifstofa bresku ríkisstjórnarinnar blandaði sér þá í málið og skrifaði á X: „Við verðum að vera algjörlega ósammál“ yfirlýsingu bandaríska sendiráðsins. „Það er bara hægt að búa til te með því að nota ketil.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?