Móðirin hefur nú verið dæmd í sex mánaða fangelsi vegna málsins.
Í frétt Mail Online kemur fram að móðir drengsins, sem er 39 ára, hafi flutt út til að búa hjá kærasta sínum í nokkurra kílómetra fjarlægð frá félagslegu íbúðinni.
Faðir drengsins var ekki ákærður í málinu.
Íbúðin sem um ræðir var óupphituð og bjó drengurinn einn í henni á árunum 2020 til 2022. Hafði hann um tíma ekki aðgang að heitu vatni eða rafmagni og þurfti að þvo sér upp úr köldu vatni.
Nágrannar eru sagðir hafa kvartað undan meðferðinni á drengnum en móðir hans svarað því til að hún væri að hugsa um hann og þetta kæmi þeim ekkert við. Þegar drengurinn byrjaði að óska eftir mat frá nágrönnum var lögreglu gert viðvart.
Þrátt fyrir þessar hrikalegu aðstæður er drengurinn sagður hafa mætt í skólann, verið tiltölulega snyrtilegur til fara og staðið sig með ágætum í náminu.
Franskir fjölmiðlar segja að nágrannar fjölskyldunnar glími við sektarkennd vegna málsins enda hefðu þeir mátt vita að ekki væri allt með felldu.
Móðir drengsins neitaði sök í málinu en við rannsókn málsins skoðaði lögregla meðal annars farsímagögn. Leiddu þau í ljós að móðirin hefði nær aldrei komið í íbúðina á þessum tveimur árum.