fbpx
Mánudagur 06.janúar 2025
Fókus

Er neikvæðniskekkjan ráðandi í þínu lífi?

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 23. janúar 2024 13:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Frá þróunarlegu sjónarmiði hjálpaði þessi neikvæða hlutdrægni forfeðrum okkar að lifa af. Að veita mögulegum ógnum eins og rándýrum eða náttúruvá meiri athygli en jákvæðum atriðum gegndi mikilvægu hlutverki í að geta sýnt hröð og lífsbjargandi viðbrögð,”

segir Ingrid Kuhlman, leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun og með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði, í pistli á Vísi þar sem hún fjallar um hvaða ráð við getum notað til að vinna gegn neikvæðniskekkjunni.

En hvað er neikvæðniskekkja? „Neikvæðniskekkjan (e. negativity bias) er sálfræðilegt fyrirbæri þar sem heilinn stillir sig frekar inn á neikvæða atburði, reynslu og upplýsingar en jákvæðar upplifanir. Neikvæðar fréttir í fjölmiðlum toga sem dæmi frekar í okkur en uppbyggilegar fréttir,“ segir Ingrid.

Bendir hún á að neikvæðniskekkjan getur verið mismunandi milli einstaklinga og menningarheima. Þættir eins og uppeldi, lífsreynsla og samfélagsleg viðmið geta haft áhrif á hversu áberandi neikvæðniskekkjan er.

Algengt dæmi um neikvæðniskekkju

Ingrid segir að algengt dæmi um neikvæðniskekkju megi sjá í því hvernig fólk bregst við endurgjöf eða gagnrýni. 

„Ímyndum okkur aðstæður þar sem einstaklingur fær frammistöðumat í starfi. Umsögnin inniheldur að mestu jákvæðar athugasemdir um árangur hans og færni en færir honum einnig uppbyggilega gagnrýni eða tillögur til úrbóta.

Þrátt fyrir að endurgjöfin sé að mestu jákvæð gæti einstaklingurinn fest sig í neikvæðu athugasemdunum. Hann gæti velt sér upp gagnrýninni, fundið fyrir óhóflega neikvæðum tilfinningum og jafnvel litið framhjá eða vanmetið jákvæða þætti matsins. Þessi tilhneiging að gefa neikvæðu endurgjöfinni meira vægi og rými, þrátt fyrir jákvæða endurgjöf, sýnir neikvæðniskekkjuna í verki og er gott dæmi um hvernig hún getur skekkt túlkun okkar á upplýsingum og reynslu.“

Neikvæðniskekkjan hefur ýmsa galla

Þó að gott sé að sýna árvekni þegar hættur steðja að líkt og forfeður okkar gerðu hefur neikvæðniskekkjan ýmsa galla. 

„Í fyrsta lagi munum við neikvæða reynslu oft betur og í lengri tíma en jákvæða eða hlutlausa reynslu. Þetta getur haft áhrif á hvernig við skynjum fortíðina og sjáum fyrir okkur framtíðina. Í öðru lagi kalla neikvæð atvik venjulega fram sterkari og nærtækari tilfinningaviðbrögð en jákvæðir eða hlutlausir atburðir. Þetta getur leitt til skekktrar skynjunar á upplifunum. Neikvæðniskekkjan hefur auk þess þau áhrif að við einblínum meira á hugsanlega ókosti en jákvæðar hliðar við ákvarðanatöku, sem getur leitt til áhættufælni og of svartsýns viðhorfs. Í fjórða lagi getum við þróað með okkur kvíða og þunglyndi þegar við einblínum um of á neikvæðu hliðarnar.“

Að vinna gegn neikvæðniskekkjunni

Ingrid segir að hægt sé að takast á við neikvæðniskekkjuna með blöndu af meðvitund, vitsmunalegum aðferðum og hegðunarbreytingum. 

Hér fyrir neðan eru nokkrar árangursríkar aðferðir:

  • Fyrsta skrefið er að viðurkenna að þú leggur of mikla áherslu á hið neikvæða og átta þig á því hvernig það hefur áhrif á skynjun þína og viðbrögð. Aukinn skilningur getur hjálpað til við að breyta viðbrögðum þínum við neikvæðri reynslu.
  • Að einblína meðvitað á jákvæða reynslu getur dregið úr áhrifum neikvæðrar reynslu. Þetta þýðir ekki að þú eigir að hunsa neikvæða þætti heldur frekar að þú látir þá ekki yfirskyggja jákvæða þætti. Ef þú átt það til dæmis til að dvelja of mikið eða of lengi við smávægileg mistök skaltu minna þig á hvað þú gerðir rétt eða hvað þú lærðir af reynslunni.
  • Leitaðu markvisst að jákvæðri reynslu og njóttu hennar. Þetta getur falið í sér að verja tíma með ástvinum, taka þátt í skemmtilegum áhugamálum eða einfaldlega að gera hluti sem láta þér líða vel.
  • Að stunda núvitund og hugleiðslu getur gert þig meðvitaðri um hugsanir þínar og tilfinningar og gert þér kleift að fylgjast með þeim án dóma eða viðbragða. Núvitund getur hjálpað til við að draga úr áhrifum neikvæðra hugsana.
  • Þakklæti getur unnið gegn neikvæðniskekkjunni með því að stuðla að meira jafnvægi. Að halda þakklætisdagbók, þar sem þú skrifar reglulega niður hluti sem þú ert þakklát(ur) fyrir, getur fært fókusinn frá neikvæðum atriðum og yfir í jákvæð.
  • Jákvæðar staðhæfingar geta unnið gegn neikvæðum hugsunum og stuðlað að jákvæðara hugarfari. Þetta geta verið staðhæfingar eins og „Sérhver áskorun er tækifæri til að vaxa“ eða „Ég er örugg(ur) og fær í því sem ég tek mér fyrir hendur“.
  • Vertu meðvitaður um útsetningu þína fyrir neikvæðum áhrifum, svo sem stöðugum slæmum fréttum eða eitruðum samböndum. Aukin meðvitund getur átt sinn þátt í að draga úr algengi neikvæðra hugsana og tilfinninga.

„Með því að æfa þessar aðferðir reglulega geturðu smám saman fært áherslu þína frá neikvæðri hlutdrægni yfir í jafnvægi og raunsærri sýn á heiminn. Mundu að breytingar taka tíma og sýndu þér þolinmæði og mildi á meðan þú vinnur að því að stilla hugarfar þitt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fer í gegnum síma eiginmannsins á hverju kvöldi og skammast sín ekkert fyrir það

Fer í gegnum síma eiginmannsins á hverju kvöldi og skammast sín ekkert fyrir það
Fókus
Fyrir 2 dögum

Boða grundvallarbreytingar á Söngvakeppninni – Ekkert einvígi og alþjóðleg dómnefnd

Boða grundvallarbreytingar á Söngvakeppninni – Ekkert einvígi og alþjóðleg dómnefnd
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að „flensubomban“ geti gert kraftaverk í veikindum – Svona er uppskriftin

Segir að „flensubomban“ geti gert kraftaverk í veikindum – Svona er uppskriftin
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það er gaman að sjá þessa konu við hliðina á honum, sem er styrkurinn hans og ýtir honum út fyrir þægindarammann“

„Það er gaman að sjá þessa konu við hliðina á honum, sem er styrkurinn hans og ýtir honum út fyrir þægindarammann“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Vinsælustu heyrnartólin á skrifstofuna 2024

Vinsælustu heyrnartólin á skrifstofuna 2024
Fókus
Fyrir 5 dögum

Málin sem vöktu mesta athygli á árinu á Fókus – Afmælisferð sem breyttist í martröð, strákarifrildi og hættur Tenerife

Málin sem vöktu mesta athygli á árinu á Fókus – Afmælisferð sem breyttist í martröð, strákarifrildi og hættur Tenerife