„Mér finnst enn skrítið, verð hissari og hissari, yfir að enginn fjölmiðill hefur séð ástæðu til að segja frá að Samstöðin er ný sjónvarpsstöð. Skrítið að alla daga gerist eitthvað sem er merkilegra en að ný sjónvarpsstöð hafi verið stofnuð sem sendir út samfélagsumræðu 24 tíma á sólarhring alla daga vikunnar,“ sagði Gunnar Smári á Facebook-síðu sinni.
Sjónvarpsstöð Samstöðvarinnar hóf útsendingar fyrir skemmstu og er til dæmis hægt að nálgast útsendingarnar á stöð 5 hjá Sjónvarpi Símans. Þá eru þættir stöðvarinnar aðgengilegir á YouTube og vitanlega á heimasíðu miðilsins.
„Þetta er meiri samfélagsumræða en nokkur sjónvarpsstöð á Íslandi sendir frá sér, margfalt meiri,“ sagði Gunnar Smári á vef Samstöðvarinnar í desembermánuði. „Og okkur er sagt að hún sé líka betri, alla vega dýpri,“ bætti hann við.
Fjörugar umræður hafa farið fram við færslu Gunnars Smára og taka ýmsir undir með honum að þetta sé undarlegt, að fjölmiðlar vilji almennt síður fjalla um það sem telst til jákvæðra tíðinda fyrir aðra fjölmiðla en þeirra eigin.
„Er Samstöðin ekki bara ógn við tilvist einhverra. Það hefur snúist uppá guttanefin af minna tilefni,“ sagði tónlistarmaðurinn góðkunni Pálmi Gunnarsson meðal annars. „Sammála,“ sagði fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir við færslu Smára. „Þetta heitir þöggun og er skammarlegt,“ sagði Þór Saari, fyrrverandi þingmaður.
Varaborgarfulltrúinn og Píratinn fyrrverandi Rannveig Tenchi tók einnig undir og sagði:
„Já það er alveg spes, af því að nú er ekki eins og að þið séuð bara að einskorða ykkur við málaskrá og baráttumál Sósíalista, þið eruð með alls konar áhugaverða þætti um ýmis konar samfélagsmál – finnst það alveg spes að sýna því ekki athygli.“
Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, kom með athyglisverðan punkt í umræðuna og gagnrýndi meðal annars sinn gamla vinnustað.
„Það er vaxandi ólundarbragur í íslenskri fjölmiðlun. Miklu sjaldnar en áður rausnast einn fjölmiðill til að vitna í annan sem hefur lagt vinnu í að búa til frétt eða umfjöllun. Frekar er málið sett í súrtunnu og veitt upp að hæfilegum tíma liðnum án tilvitnunar. Þetta er ekki stórmannlegt. Ríkisútvarpið þarf að gera betur, vera öðrum betri fyrirmynd í víðsýni og rausnarskap. Svo er stofnuð sjónvarpsstöð og það er bara þagað yfir því.“
Ekki voru þó allir sem tóku undir með ritstjóranum og sagði Jón Viðar Jónsson til dæmis:
„Ef þú heldur að stöð þessi fái ókeypis auglýsingu í fréttaformi hjá öðrum fjölmiðlum, þá ertu grænni en ég hefði haldið. Þú veist á hvaða landi þú býrð, er það ekki?“