Nú er nístingskalt víða í Rússlandi, allt niður í 35 stiga frost. Þetta nýtir Pútín sér þessa dagana til að afla nýrra hermanna. Samkvæmt því sem þýska blaðið Bild segir þá hefur hann látið skrúfa fyrir hitann í mörgum rússneskum fangelsum til að reyna að þvinga fangana til að ganga til liðs við herinn til að sleppa úr þeim frystikistum sem fangelsin eru orðin.
„Markmiðið er að gera aðstæðurnar í fangelsunum svo slæmar að mennirnir, sem sitja í þeim, fari til Úkraínu,“ sagði Olga Romanova, sem er í forsvari fyrir samtökin „Russia Behind Bars“ sem hafa að markmiði að gæta hagsmuna fanga í rússneskum fangelsi.
Í Rússlandi eru þrír þjóðfélagshópar sem fáir hafa samúð með þegar menn úr þeim deyja í víglínunni. Þetta eru fangar, minnihlutahópar sem búa fjarri Moskvu og innflytjendur. Romanova sagði að svo lengi sem menn úr þessum hópum berjist og deyi í Úkraínu, geti Pútín skapað þá tálmynd fyrir restina af þjóðinni að allt sé í stakasta lagi.