Fékk aðsvif á sýningu í gærkvöldi – Þurfti aðstoð við að komast út úr kvikmyndahúsinu
Kallað var eftir aðstoð viðbragðsaðila í gærkvöldi eftir að bíógestur fékk aðsvif á meðan hann fylgdist með kvikmynd í Smárabíói.
Verið var að sýna hasarmyndina Deadpool, með Ryan Reynolds í aðalhlutverki, þegar að atvikið átti sér stað.
Samkvæmt lögreglunni í Kópavogi leið yfir viðkomandi og þurfti hann aðstoð við að komast út úr kvikmyndahúsinu.
Hér má sjá brot úr kvikmyndinni Deadpool.