Taylor átti ótrúlega góðu gengi að fagna á liðnu ári og var meðal annars valin manneskja ársins hjá Time-tímaritinu. Eðlilega voru augu margra því á þessari stórstjörnu og fékk hún sinn skerf af gríni og háði yfir sig frá grínistanum og uppistandaranum Jo Koy sem var kynnir hátíðarinnar.
Einn brandari virðist hafa fallið illa í kramið hjá söngkonunni geðþekku.
„Stærsti munurinn á Golden Globes-verðlaunahátíðinni og NFL-deildinni er sá að á Golden Globes fáum við að sjá færri skot af Taylor Swift í sjónvarpinu,“ sagði Koy og vísaði í ástarsamband Taylor Swift og NFL-leikmannsins Travis Kelce sem leikur með Kansas City Chiefs.
Taylor Swift hefur verið dugleg að mæta á leiki hjá sínum heittelskaða og hefur viðvera hennar á leikjum vakið gríðarlega athygli. Hefur myndavélinni ótt og títt verið beint að henni í stúkunni.
En Taylor stökk ekki bros á vör ef marka má myndir frá hátíðinni og umfjöllun Page Six. Vakti þetta athygli netverja sem tjáðu sig um málið á samfélagsmiðlum. „Ef augnaráð gæti drepið…,“ sagði til að mynda einn og annar sagði brandara Koy hafa verið „neðanbeltis“.
Golden Globes-hátíðin í gærkvöldi var sú 81. í röðinni og var kvikmyndin Oppenheimer sigursæl. Myndin var valin besta dramamyndin og þá fékk Christopher Nolan verðlaun sem besti leikstjórinn. Cillian Murphy, sem fór með hlutverk Oppenheimers, var valinn besti dramaleikarinn og Robert Downey Jr. var valinn besti aukaleikarinn. Tónlist Ludwig Göransson í myndinni var einnig verðlaunuð.
Barbie var valin besta gamanmyndin og þá var lagið úr Barbie-myndinni What Was I Made For í flutningi Billie Eilish valið það besta.
Taylor Swift reacts to joke from #GoldenGlobes host Jo Koy about the NFL.
“The big difference between the Golden Globes and the NFL? At the Golden Globes, we have fewer camera shots of Taylor Swift”
— Pop Base (@PopBase) January 8, 2024