Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir ýmis brot. Þar á meðal að veitast að leigubílstjóra og spreyja kryddvökva í andlit hans með heimagerðu úðavopni.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 22. desember en var birtur í dag.
Ákæruatriðin voru fjögur talsins og játaði maðurinn brot sín skýlaust. Hið fyrsta laut að fjársvikum og ráni í leigubíl aðfaranótt 7. október árið 2021. Fékk hann leigubílstjóra til að aka sér frá Laugavegi að öðrum stað í Reykjavík en bað hann að koma við í Holtagörðum.
Ætlaði maðurinn aldrei að greiða fyrir farið að fullu og hafði aðeins greitt fyrir lítinn hluta þess þegar átök brutust út. Veittist maðurinn að leigubílstjóranum og spreyjaði kryddvökva í andlitið á honum með heimagerðu úðavopni.
Að því loknu tók maðurinn spjaldtölvu leigubílstjórans og hljóp út úr bílnum með þýfið.
Hin brotin sem maðurinn var dæmdur fyrir voru af ýmsu tagi. Eitt laut að því að hafa þann 11. ágúst árið 2022 stolið bíl og ekið um í Breiðholtinu áður en hann var stöðvaður af lögreglu. Kom þá í ljós að maðurinn var bæði próflaus og óhæfur um að stjórna bílnum.
Eftir blóðprufu kom í ljós að hann hafi verið undir áhrifum amfetamíns, kannabisefna og klónazepam (róandi bensólyf).
Innan við viku seinna, þann 17. ágúst, braut maðurinn aftur af sér. Þá spennti hann upp glugga í íbúð á ónefndum stað í Reykjavík og ruddist inn í heimildarleysi. Ekki kemur fram að maðurinn hafi stolið nokkru í íbúðinni.
Að lokum var hann dæmdur fyrir að hafa stolið úr verslun Nettó í Mjóddinni þann 25. júní síðastliðinn. Ekki kemur fram hvaða vörur það voru en upphæðin var ekki há, tæpar 5 þúsund krónur.
Lögreglustjóri krafðist þess að manninum yrði gert að sæta refsingu og að hann yrði sviptur ökurétti. Eins og áður segir játaði maðurinn brotin og voru þau því dómtekin án frekari sönnunarfærslu.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur maðurinn margsinnis áður hlotið dóma fyrir hegningarlagabrot. Síðast fjögurra mánaða dóm þann 18. desember, fjórum dögum fyrir uppkvaðningu þessa dóms, fyrir sérlega hættulega líkamsárás. Í febrúar síðastliðnum hlaut hann níu mánaða fangelsisdóm fyrir þjófnað, fíkniefnabrot, umferðarlagabrot og eignaspjöll.
Áður hefur hann einnig verið dæmdur fyrir vopnalagabrot, gripdeild, hættubrot og brot gegn valdstjórninni svo eitthvað sé nefnt.
Þó að játningin hafi verið metin manninum til málsbóta verður að líta til hins langa brotaferils. Einnig var honum gerð refsiþynging fyrir árásina á leigubílstjórann sem er sögð „gróf og ófyrirleitin“ í dóminum.
Auk sjö mánaða óskilorðsbundins fangelsisdóms var manninum gert að greiða samanlagt tæpar 800 þúsund krónur í lögfræði og málskostnað.