Freyr Alexandersson er hættur með Lyngby og tekur við belgíska úrvalsdeildarliðinu Kortrijk.
Danski miðillinn BT segir að Freyr fari frá Lyngby til að taka við erlendu liði en Bold.dk segir frá því að Kortrijk sé að kaupa hann. Aðstoðarmaðurinn Jonathan Hartmann sé einnig á förum.
Það kemur einnig fram að Freyr ferðist til Belgíu í dag og skrifi undir á morgun.
Freyr tók við Lyngby árið 2021 í dönsku B-deildinni og hefur skilað af sér frábæru starfi. Liðið er nú um miðja úrvalsdeild eftir að hafa haldið sér uppi sem nýliði í fyrra.
Íslendingarnir Gylfi Þór Sigurðsson, Andri Lucas Guðjohnsen, Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Birgir Finnsson spila með liðinu.
Freyr var fyrr á tímabilinu orðaður við OB og Viborg í Danmörku en nú virðist sem svo að hann fari í aðra deild.