fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
Fréttir

Auður Haralds fallin frá

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 3. janúar 2024 11:24

Auður Haralds er fallin frá

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auður Haralds rithöfundur lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 2. janúar 2024 eftir stutt veikindi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Rithöfundarsambandi Íslands.

Auður fæddist í Reykjavík þann 11. desember 1947. Hún starfaði sem blaðamaður, þýðandi, útvarpskona og pistlahöfundur og sinnti verslunar-, skrifstofu- og verksmiðjustörfum.

Fyrsta skáldsaga Auðar, Hvunndagshetjan: þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn, kom út árið 1979. Hún vakti mikla athygli og opnaði umræðu í samfélaginu um heimilisofbeldi og kvennakúgun.

Auður fylgdi þeirri bók eftir með bókinni Læknamafían, lítil pen bók, sem út kom 1980, þar sem ráðist er að fjandsamlegu kerfi og hvunndagshetjan berst áfram gegn kvenfjandsamlegum viðhorfum. Hlustið þér á Mozart? kom út 1982 en verkið er íronísk ádeilda á innantómt líf heimavinnandi húsmóður sem les formúlukenndar ástarsögur til að drepast ekki úr leiðindum. Síðar gerði Auður makalaust grín að þeirri bókmenntategund í Ung, há, feig og ljóshærð sem er paródía á slíkar ástarsögur.

Auður skrifaði barnabækurnar um prakkarann Elías ,þá fyrstu skrifaði hún ásamt Valdísi Óskarsdóttur. Unglingabókin Baneitrað samband á Njálsgötunni kom út 1985 en síðar var gerð leikgerð eftir henni sem sett var á svið í Íslensku óperunni og víðar.

Auður tilheyrir þeim hópi kvenrithöfunda sem hætti að mestu að skrifa á níunda áratugnum en árið 2007 skrifaði hún Litlu, rauðhærðu stúlkuna, barnabók með myndskreytingum eftir Vigdísi Hlíf Sigurðardóttur. Árið 2000 birtist eftir Auði framhaldssaga á vefritinu Skrik.is en kom síðan út á bók 2022 og nefnist Hvað er Drottinn að drolla?

Auður lætur eftir sig þrjú uppkomin börn, Ösp, Símon og Daníel og þrjú barnabörn. Dóttir Auðar, Sara María, lést árið 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Læknir vill bólusetningar við RS veiru – „Legudeildin full af börnum með sýkinguna“

Læknir vill bólusetningar við RS veiru – „Legudeildin full af börnum með sýkinguna“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Dómur yfir manni sem varð konu sinni að bana á Akureyri veldur ólgu – „Það er allt siðferðislega rangt við þessa nafnleynd“

Dómur yfir manni sem varð konu sinni að bana á Akureyri veldur ólgu – „Það er allt siðferðislega rangt við þessa nafnleynd“
Fréttir
Í gær

Heimilt að gera fjárnám hjá Isavia

Heimilt að gera fjárnám hjá Isavia
Fréttir
Í gær

Verðbréf hrynja hjá United Health Group eftir morðið á Thompson – Hatur í garð sjúkratryggingakerfisins blossaði upp

Verðbréf hrynja hjá United Health Group eftir morðið á Thompson – Hatur í garð sjúkratryggingakerfisins blossaði upp
Fréttir
Í gær

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg
Fréttir
Í gær

Þetta er góð táknmynd af þeim stóra vanda sem Pútín glímir við

Þetta er góð táknmynd af þeim stóra vanda sem Pútín glímir við