Arouri var staddur í byggingu í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon, í gær þegar drónaárás var gerð með þeim afleiðingum að hann og nokkrir aðrir létust.
Auk Arouri létust Samir Findi Abu Amer og Azzam Al-Aqraa Abu Ammar, sem voru hátt settir í hinum herskáa armi samtakanna.
Ísraelsmenn hafa ekki tjáð sig um árásina en flest bendir til þess að þeir beri ábyrgð. CNN hefur til dæmis eftir ónafngreindum bandarískum embættismanni að Ísraelsmenn hafi skipulagt og framkvæmt árásina og að Joe Biden Bandaríkjaforseti hafi ekki vitað að hún væri yfirvofandi.
Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa hótað öllu illu eftir árásina og sagt að árásin á Arouri sé árás á Líbanon. Hafa samtökin heitið hefndum. Á sama tíma hafa Ísraelsmenn lýst því yfir að árásin, hver sem hana framdi, hafi beinst að forystu Hamas en ekki að Líbanon.
Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi Hamas, segir að samtökin syrgi Arouri. Segir hann að um hafi verið að ræða „heigulslegt“ hryðjuverk sem Ísraelsstjórn ber ábyrgð á.
Arouri er talinn hafa haft nokkuð stórt hlutverk í viðræðum Hamas og Ísraels um lausn þeirra gísla sem teknir voru höndum þegar Hamas-samtökin réðust inn í Ísrael í byrjun október. Er talið að drápið muni flækja mjög frekari viðræður um lausn gíslanna.
Alþjóðasamfélagið hefur brugðist við drápinu á Arouri og hefur Emmanuel Macron Frakklandsforseti kallað eftir því að Ísraelsmenn passi sig á hugsanlegri stigmögnun stríðsins, sérstaklega þegar kemur að Líbanon.
Þá lýsti Macron yfir áhyggjum sínum yfir stöðu mála á Gaza þar sem yfir 22 þúsund manns hafa látist síðan Ísraelsmenn hófu árásir sínar í október.