TMZ birti myndband af átökunum sem vakið hefur mikla athygli og hefur Ziering nú sjálfur stigið fram og lýst sinni hlið á málinu.
Á myndbandinu sést þegar Ziering stígur út úr bifreið sinni á Hollywood Boulevard í Los Angels og slær til mótorhjólamanns og ýtir honum í götuna. Félagar mannsins voru snöggir að bregðast við og reyndu þeir að slá til leikarans sem brást við með því að reyna að koma sér undan á hlaupum.
Ziering opnaði sig um atvikið á Instagram-síðu sinni í gær.
Þar sagðist Ziering hafa verið að aka niður Hollywood Boulevard með dóttur sinni þegar einn meðlimur mótorhjólahópsins ók ógætilega og rakst utan í bifreið hans. Ziering segist hafa farið út úr bifreið sinni í kjölfarið til að athuga með skemmdir en til snarpra orðaskipta hafi komið milli hans og umrædds mótorhjólamanns sem enduðu með fyrrgreindum átökum.
Ziering segir að bæði hann og dóttir hans, 12 ára gömul, hafi sloppið ómeidd frá atvikinu og kveðst hann vera þakklátur fyrir það.
Hann segir að lögregla þurfi þó að vera betur vakandi fyrir hópum sem þessum, oftar en ekki ungum mönnum sem með hegðun sinni og gjörðum valda ótta og óöryggi meðal almennings.