Síauknar líkur eru taldar á nýju eldgosi á Reykjanesskaga á allra næstu dögum. Staðsetning gossins gæti verið með þeim hætti að hraun þaðan rynni til Grindavíkur. Þrátt fyrir þetta hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ekki afturkallað nýlegt leyfi til íbúa um að þeir megi dveljst í bænum. Engu að síður hvetja yfirvöld bæjarbúa til að dveljast annars staðar yfir áramótin.
Í nýrri tilkynningu frá almannvavarnadeild ríkislögreglustjóra segir:
„Veðurstofan gaf í gær út nýtt hættumatskort, þar kom fram að þrátt fyrir að staðan í Grindavík og Svartsengi sé metin með sama hætti og í fyrra korti þ.e. „Töluverð hætta“ þá hefur hættan aukist. Á bakvið hættumatskort Veðurstofunnar eru töluleg gildi sem meta hættuna hverju sinni. Þau gildi hafa hækkað frá fyrra hættumatskorti en ekki nóg til að hækka þessi tvö svæði sem Grindavík og Svartsengi eru í, um flokk.
Líkt og fram hefur komið eru auknar líkur á eldgosi. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að banna ekki dvöl í Grindavík en leggst gegn því engu að síður. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tekur undir þau sjónarmið og hvetur Grindvíkinga að leita allra leiða til að dvelja ekki í bænum fram yfir áramót.
Eins og áður þá er staðan endurmetin á hverjum degi en ekkert bendir til annars en að hætta á eldgosi hafi aukist.“