Þegar limur hans var kominn í reisn tók hún upp rakvélablað og skar hann af. Því næst fór hún með liminn og sturtaði niður úr klósettinu. Því næst gekk hún yfir á næstu lögreglustöð ásamt bróður sínum og sagði: „Góða kvöldið lögreglumaður, ég er komin til að gefa mig fram því ég er nýbúin að skera liminn af eiginmanni mínum.“ Hún sagði lögreglunni síðan að hún hefði sturtað limnum niður úr klósettinu því hún hefði heyrt að það væri hægt að sauma getnaðarlim aftur á karlmann.
Dómari í heimabæ þeirra hjóna, Atibaia í Sao Paulo í Brasilíu, úrskurðaði hana í 30 daga gæsluvarðhald fyrir morðtilraun.
Metro segir að eiginmaðurinn hafi fyrirgefið eiginkonu sinni verknaðinn. „Um hvort ég fyrirgefi henni, þá er sannleikurinn sá að Guð er sá eini sam þarf að fyrirgefa, en af minni hálfu hef ég fyrirgefið henni,“ sagði hann.
Hann sagði að þegar Daiane skar undan honum hafi hún skyndilega gripið þéttingsfast um kynfæri hans í myrkrinu og skorið liminn af.
Hvorki eiginmaðurinn né lögreglan hafa viljað tjá sig um ásakanir Daiane um að hann hafi sofið hjá 15 ára frænku hennar en hún segir að það sé ástæðan fyrir að hún skar undan honum.